Aðalfundur SAF 2025


Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram fimmtudaginn 20.mars á Hótel Örk í Hveragerði.  Skráning er í fullum gangi og eru félagsmenn í SAF hvattir til að fjölmenna á fundinn!

Á þessari síðu er að finna mikilvægar upplýsingar um dagskrá aðalfundar SAF 2025, kosningar til stjórnar, skráningu á fundinn og praktísk atriði.


09.00 – 10.00   Heitt á könnunni og afhending fundargagna

10.00 – 12.00    Fagnefndafundir

12.00 – 13.00    Hádegisverður á Hótel Örk

13.00 – 13.45    Samtal um ferðaþjónustu

13.45 – 14.00    Fundarhlé

14.00 – 16.00    Aðalfundur SAF

  1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  3. Ársreikningur liðins starfsárs
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun um árgjald
  6. Kosningar
    1. kosning meðstjórnenda
    2. kosning löggilts endurskoðanda
  7. Önnur mál

16.30 – 18.00    Heimsókn til fyrirtækja í Hveragerði

19.00                  Móttaka og fordrykkur í boði bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar

19.30 – 00.00    Kvöldverður og skemmtun á Hótel Örk


Mikilvægt er að skrá sig til leiks á aðalfundi SAF. Það er gert með því að smella á hlekkinn hér að neðan.


Félagsmenn í SAF greiða 4.500 kr. fundargjald. Innifalið í gjaldinu er aðgangur að fundum, fundaveitingar og hádegisverður. 

Þeir félagsmenn sem mæta í kvöldverð greiða sérstaklega fyrir hann beint til Hótel Arkar. Mikilvægt er að þeir félagsmenn sem vilja taka þátt í kvöldverði og skemmtun skrái sig á fundinn sem fyrst en á skráningarforminu má einnig finna skráningu í kvöldverð.


Í aðdraganda aðalfundar SAF hefur kjörnefnd verið að störfum sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Kjörnefnd hefur þegar auglýst eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2025 – 2027 og bárust sex framboð þegar framboðsfrestur rann út fimmtudaginn 6. mars sl.

Frambjóðendur til stjórnar SAF eru eftirtaldir í stafrófsröð – smellið á tenglana til að sjá kynningu frambjóðenda:

Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri. Formaður SAF var kjörinn á aðalfundi SAF árið 2024 og því er nú kjörið um þrjú aðalsæti í stjórn SAF til næstu tveggja ára.


Rafræn kosning til stjórnar SAF hófst fimmtudaginn 13. mars og stendur fram yfir kynningu frambjóðenda á aðalfundi samtakanna sem fram fer fimmtudaginn 20. mars á Hótel Örk í Hveragerði.

Sem kunnugt er hefur hver félagsmaður atkvæðamagn á aðalfundi í hlutfalli við greitt félagsgjald í SAF um síðastliðin áramót. Hverjum heilum þúsund krónum greiddra félagsgjalda fylgir eitt atkvæði. Á atkvæðaseðlinum er tiltekið hversu mörg atkvæði fyrirtækið á rétt á í atkvæðagreiðslunni. Forsvarsmenn fyrirtækja í Samtökum ferðaþjónustunnar hafa fengið sendan tölvupóst með upplýsingum um kjörið.

Til að taka þátt í kjörinu smellir þú á tengilinn „Taka þátt“ hér að neðan og þá færist þú yfir á innskráningarsíðu. Eftir auðkenningu er atkvæðaseðillinn aðgengilegur. Athugið að einungis er hægt að kjósa einu sinni.

Könnuður ehf. annast rafrænar kosningar fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar. Öll meðhöndlun gagna tryggir að svör verða aldrei rakin til einstakra kjósenda.

Þeir félagsmenn sem lenda í vandræðum með að kjósa er bent á að senda tölvupóst á netfangið skapti@old.saf.is


Á fundi faghópa í tengslum við aðalfund SAF eru kosnar fagnefndir fyrir starfsárið 2025-2026.

Fagnefndirnar eru mikilvægur liður í grasrótarstarfi samtakanna en þar gefst fyrirtækjum færi á að ræða sameiginleg álitamál og úrlausnarefni og stefnumarkandi málefni er varða viðkomandi starfsgreinar innan ferðaþjónustunnar.

Innan SAF starfa átta fagnefndir: afþreyingarnefnd, bílaleigunefnd, ferðaskrifstofunefnd, flugnefnd, gististaðanefnd, hópbifreiðanefnd, veitinganefnd og siglinganefnd.

Öllum félagsmönnum er heimilt að taka þátt í störfum þeirra faghópa sem falla undir hans starfsemi, en við kosningu til hverrar nefndar hefur hvert aðildarfyrirtæki eitt atkvæði. Rétt er að geta þess að einungis er hægt að skila inn framboði í eina fagnefnd og skal framboðið staðfest af forsvarsmanni eða eiganda fyrirtækis.

Félagsmenn, sem óska eftir að taka sæti í fagnefnd, eru beðnir að skila inn framboði fyrir lok dags mánudaginn 17. mars. Framboðum skal skila rafrænt með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Gjald fyrir kvöldverð er 12.500 kr. og greiðist beint til Hótel Arkar á staðnum en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig við fyrsta tækifæri. Hægt er að skrá sig á skráningarformi aðalfundar.

Innifalið er 3 rétta kvöldverður og skemmtun. Drykkjarföng eru greidd á staðnum. Matseðill kvöldsins samanstendur af humarsúpu með steiktum leturhumri og léttþeyttum rjóma, nautalund með kryddsoðinni kartöflu, steiktum sveppum og béarnaise sósu og að lokum klassískt og karamelliserað créme brulée. 

Þátttakendur sem eru með ofnæmi eða matarsérþarfir eru beðnir um að senda póst á Maríu Rut Ágústsdóttur, verkefnastjóra SAF, á mariarut@old.saf.is við fyrsta tækifæri. 


Félagsmönnum SAF bjóðast sérkjör af gistingu í tengslum við aðalfund samtakanna, bæði hjá Hótel Örk og Gróðurhúsinu. Bókanir á gistingu fara fram á vefsíðum þeirra en félagsmenn geta nýtt eftirfarandi kóða:

  • Hótel Örk – kóði: SAF25
  • Gróðurhúsið – kóði: saf

Eftirfarandi aðilar bjóða félagsmönnum í SAF 50% afslátt í tengslum við aðalfund SAF:

  • MegaZipline – kóði: SAF
  • Jarðhitasýningin – kóði: SAF25
  • Hveragarðurinn – enginn kóði, bara mæta!

Endurskoðaðir ársreikningar Samtaka ferðaþjónustunnar munu liggja fyrir á skrifstofu samtakanna í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 í Reykjavík, viku fyrir aðalfund.

Ein tillaga frá stjórn SAF til breytinga á lögum samtakanna liggur fyrir fundinum. Tillagan lýtur að því að formgera starfsreglur kjörnefndar og hægt er að kynna sér tillöguna hér.

Fyrir aðalfundinum liggur tillaga að óbreyttum félagsgjöldum í SAF frá stjórn samtakanna.

Allar nánari upplýsingar um aðalfund og fundi faghópa SAF er hægt að fá hjá Skapta Erni Ólafssyni, upplýsingafulltrúa SAF, í gegnum netfangið skapti@old.saf.is eða í síma 899-2200.