
Ritz Carlton vinnustofa í samstarfi við SVÞ og SAF
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ LÆRA AF BESTA ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI HEIMS!
Stjórnandi frá hótelkeðjunni mun leiða hálfs dags vinnustofu sem hjálpar þátttakendum, á hagnýtan hátt, að láta sín fyrirtæki skara framúr með fyrsta flokks þjónustu.
Apple er eitt af mörgum framúrskarandi fyrirtækjum heims sem hefur notað Ritz Carlton sem fyrirmynd við mótun á allri þjónustu. Apple verslanirnar hafa vakið heimsathygli fyrir góða þjónustu en öll þjónustuupplifunin er mótuð eftir vinnulagi Ritz Carlton en þaðan spratt m.a. upp hugmyndin að genius bar o.fl.
Vinnustofa:
Staður: Hilton Reykjavik Nordica
Stund: 12. september, kl. 8:30 til 12:30
Verð: 69.900 per. þátttakanda. Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi
Námskeiðslýsing Ritz Carlton:
Í Ritz Carlton þjónustuskólanum lærir þú að verða meistari í þjónustu.
* Farið verður yfir fimm lykilþætti sem viðskiptavinir þurfa og vilja að sá sem veitir þjónustu búi yfir, óháð því fyrir hvaða fyrirtæki eða í hvaða geira viðkomandi starfar.
* Lykilþjónustuþættir Ritz-Carlton: Yfirlit yfir þá þjónustueiginleika sem leiða til raunverulegra sambanda og mikilvægi sálfræði í þjónustu.
* Skýr þjónustustefna: Það er lykilatriði að þjónustupplifun viðskiptavinarins sé alltaf sú sama. Ein leið til að tryggja það hjá Ritz-Carlton er með því að nota hin þrjú þrep þjónstu.
* Máttur ráðandi þjónustu: Þú munt komast að því hvernig á að sjá fyrir og vinna með þarfir viðskiptavinarins í gegnum þjónustuupplifunina, þar með talið hvernig á að bæta skynjun með því að nýta augnablikið, hvernig nýta á lykilatriði úr CRM fræðum og hvernig á að notfæra sér það að koma viðskiptavinum á óvart og gleðja þá.
* Tilfinningalegar tengingar: Umræða um muninn á hlutlægum og tilfinningalegum eiginleikum og af hverju þessi munur er lykilatriði þegar kemur að vörumerkjatryggð.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir alla sem stjórna, móta eða hafa áhrif á þjónustuupplifun viðskiptavina fyrirtækja af öllum stærðum, og í öllum atvinnugreinum.