Umhverfisdagur atvinnulífsins 2020

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2020

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn rafrænt á miðvikudaginn 14. október 2020 frá 8.30-10.00.

  • Skráning fer fram HÉR.

Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samorka, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Í ár er viðburðinum eingöngu streymt rafrænt í opinni dagskrá á vef Samtaka atvinnulífsins, samfélagsmiðlum og fjölmiðlum. Dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10.00.

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins í ár verða veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins.

DAGSKRÁ

  • Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir

Ávörp flytja: 

  • Halldór Benjamín Þorbergsson
  • Kristín L. Árnadóttir, aðstoðarforstjóri LV
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion
  • Jónína G. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Terra
  • Ari Edwald, forstjóri MS

UMHVERFISVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir viðurkenningu fyrir umhverfisframtak ársins og til umhverfisfyrirtækis ársins.

Þessir stjórnendur í íslensku atvinnulífi koma jafnframt fram í Sjónvarpi atvinnulífsins í tilefni af Umhverfisdegi atvinnulífsins:

  • Arndís Soffía Sigurðardóttir
    Hótel Fljótshlíð – hótel án úrgangs 
  • Berglind Ósk Ólafsdóttir, BYKO
    Umhverfisvænar byggingavörur 
  • Bjarni Herrera, Circular Solutions
    Hringrásarhagkerfið 
  • Guðlaug Kristinsdóttir, Límtré
    Límtré úr íslenskum við 
  • Hafsteinn Helgason, EFLA
    Vindmyllur á Íslandi? 
  • Heiða Halldórsdóttir, Orkusalan
    Orkusala án kolefnisfótspors 
  • Jón Gestur Ólafsson, Höldur
    Umhverfisvænir bílaleigubílar. Hvað þarf til? 
  • Sigrún Hildur Jónsdóttir, Klappir
    Snjöll umhverfisstjórnun 
  • Sigurður Pétursson, Arctic Fish
    Umhverfisáskoranir fiskeldis

Við hlökkum til að sjá ykkur á Umhverfisdegi atvinnulífsins 2020 – að þessu sinni í Netheimum!

  • Skráning fer fram HÉR.

Date

14 okt 2020

Time

08:30 - 10:00
Samtök ferðaþjónustunnar

Skipuleggjendi

Samtök ferðaþjónustunnar
Email
saf@old.saf.is
Website
https://old.saf.is