Jólakveðja SAF 2021
Samtök ferðaþjónustunnar óska þér og þínum gleðilegra jóla og þakka fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Megi nýtt ár færa okkur öllum gleði og gæfu, farsæld og ferðamenn! Stjórn og starfsfólk Samtaka ferðaþjónustunnar
Samtök ferðaþjónustunnar óska þér og þínum gleðilegra jóla og þakka fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Megi nýtt ár færa okkur öllum gleði og gæfu, farsæld og ferðamenn! Stjórn og starfsfólk Samtaka ferðaþjónustunnar
Icelandic Lava Show hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2021. Samtök ferðaþjónustunnar afhenda verðlaunin á afmælisdegi samtakanna, 11. nóvember ár hvert. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti Icelandic Lava Show verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. SAF afhenda Nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan samtakanna til nýsköpunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja […]
Íslandsstofa (Meet in Reykjavík) og Samtök ferðaþjónustunnar bjóða þér ásamt gesti á fund um framtíðarhorfur í ráðstefnu-, viðburða- og hvataferðaþjónustu (MICE) hér á landi. Fundurinn fer fram í Silfurbergi Hörpu 29. september frá kl. 15-18. Í lok fundar verða laufléttar veitingar og netagerð í boði Meet in Reykjavík og SAF. Aðalfyrirlesari fundarins er Annika Rømer […]
Ferðaþjónustudagurinn 2021 fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 16. september kl. 14.00 undir yfirskriftinni Viðspyrna í ferðaþjónustu. Forystufólk stjórnmálaflokkanna tekur þátt í pallborðsumræðum þar sem sjónum verður beint að viðspyrnu í ferðaþjónustu, áætlunum um árangur og leiðum að settu marki!Fylgstu með Ferðaþjónustudeginum 2021 í þráðbeinni útsendingu úr Hörpu kl. 14.00! Fylgstu með Ferðaþjónustudeginum 2021 […]
Leiðtogar stjórnmálaflokka mætast í pallborðsumræðum á Ferðaþjónustudeginum í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 16. september klukkan 14.00. Í umræðunum verður sjónum beint að því hvernig viðspyrnu í ferðaþjónustu verður háttað á komandi kjörtímabili. Hverjar eru áherslur og áætlanir stjórnmálaflokkanna þegar kemur að málefnum ferðaþjónustunnar? Hvers má vænta af næstu ríkistjórn þegar kemur að rekstrarumhverfi fyrirtækja í […]
Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir miðvikudaginn 8. september. Verðlaunin eru veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fram fer í Hörpu miðvikudaginn 6. október. Tekið er við tilnefningum með tölvupósti á sa@sa.is merktum „Tilnefning til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak […]
Nú er ljóst að töluverðar líkur eru á að COVID-19 smit geti haft neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækja á næstu vikum og mánuðum á meðan COVID-19 gengur yfir samfélagið, með stýrðum hætti eins og kostur er, þar til hjarðónæmi er náð meðal þjóðarinnar. Yfirlýsingar og fyrirmæli stjórnvalda og sóttvarnaryfirvalda eru á þann veg að ekki […]
Í úrskurði Sýslumannsins á Suðurnesjum, dagsettum 29. júní 2021, kemur fram að eigendur jarðarinnar Hrauns á Reykjanesi telji að Norðurflugi ehf. beri að greiða eðlilegt og sanngjarnt gjald vegna lendinga í tengslum við útsýnisflug yfir eldgosið í Geldingadölum. Norðurflug ehf. hefur leitað samninga við landeigendur án árangurs og en ljóst er að aðila greinir verulega […]
Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 8. september. Verðlaunin eru veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins 6. október í Hörpu. Tekið er við tilnefningum með tölvupósti á sa@sa.is merktum „Tilnefning til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Dómnefnd velur úr tilnefningum* og mun […]
Á seinnihluta síðustu aldar voru rafmagnsbílabrautir vinsælt leikfang krakka á öllum aldri. Bílarnir voru knúðir rafmagni og þeyttust áfram á ógnarhraða miðað við stærð og sigruðust oftar en ekki á þyngdaraflinu með ævintýralegum hætti. Þá datt fáum í hug að slík ökutæki gætu orðið farskjóti almennings. Þeir sem léku sér að bílabrautunum nýttu sér farskjóta […]