Breytingar á gistináttaskatti frá 1. janúar 2024
Alþingi hefur samþykkt ný lög um skatta og gjöld (gistináttaskattur, áfengisgjald o.fl.) þar sem meðal annars eru gerðar breytingar á gistináttaskatti. Lögin hafa ekki verið birt en þau taka gildi 1. janúar 2024. Breytingar á gistináttaskatti í stuttu máli: Áfram skal greiða gistináttaskatt af hverri seldri gistináttaeiningu.Með gistináttaeiningu er átt við leigu á gistiaðstöðu í […]
Þreföld rangstaða flugumferðarstjóra
Stór hluti þjóðarinnar horfir nú í forundran á framgöngu lítillar hálaunastéttar, sem hefur það á valdi sínu að loka landinu, eyjunni norður í höfum – þaðan og þangað sem fólk hefur nánast enga möguleika að ferðast, öðruvísi en með flugi. Flugið er einnig mjög mikilvægt í tengslum við annan útflutning en ferðaþjónustu, til dæmis á […]
155 milljarða skattspor ferðaþjónustunnar árið 2022
Skattspor ferðaþjónustunnar árið 2022 var kynnt á morgunverðarfundi Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka atvinnulífsins Hótel Reykjavík Grand fimmtudaginn 7. desember 2023. SAF fengu Reykjavík Economics til þess að reikna skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022 og skila skýrslu með sambærilegum hætti og hefur verið gert fyrir stærstu fyrirtæki landsins sem og aðrar útflutningsatvinnugreinar. Ferðaþjónustan skilar sínu Þjóðhagslegt […]
Skýrsla um skattspor ferðaþjónustunnar árið 2022
Skýrsla um skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022 var kynnt á fjölmennum fundi á Hótel Reykjavík Grand í morgun. Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins stóðu að fundinum, en skýrslan var unnin af Reykjavík Economics fyrir SAF. Magnús Árni Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, kynnti megin niðurstöður skýrslunnar á fundinum en skýrsluna í heild sinni og kynningu Magnúsar […]
Skattspor ferðaþjónustunnar – upptaka frá fundinum
Skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022 verður kynnt á morgunfundi á Hótel Reykjavík Grand fimmtudaginn 7. desember kl. 9.00. Á fundinum verða flutt ávörp ásamt því að skýrsla sem Reykjavík Economics hefur unnið fyrir Samtök ferðaþjónustunnar verður kynnt. Þá fara fram umræður um skattspor ferðaþjónustunnar og hvert raunverulegt framlag greinarinnar er til samfélagsins. Dagskrá fundarins: Ávarp […]
SKATTSPOR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR: Kynningarfundur 7. desember
Hvert er framlag ferðaþjónustunnar til samfélagsins? Skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022 verður kynnt á morgunfundi á Grand hótel fimmtudaginn 7. desember. Fundurinn fer fram í salnum Gullteig og hefst kl. 9.00. Húsið opnar kl. 8.30 með léttum morgunverði. Fundurinn er opinn öllum og ókeypis, en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér: https://forms.gle/eGD4AGWKz7dsodUX6 Flutt verða […]