Um samþættingu efnahagslegra sjónarmiða og sóttvarna
Á dögunum kom fram í gögnum frá Ferðamálastofu að þrátt fyrir góða og mikla aukningu í ferðalögum og neyslu Íslendinga innanlands í sumar næði það engan veginn til að fylla upp í það tómarúm sem erlendir ferðamenn skildu eftir sig í atvinnugreininni. Til þess þyrftu Íslendingar að fimmfalda neyslu sína í innlendri ferðaþjónustu frá því […]
Ekki er allt sem sýnist
Fljótt á litið virðumst við Íslendingar bara vera að koma nokkuð vel út úr Covid- efnahagskreppunni. Eða eins og einhver orðaði það – það er eins og hér hafi aldrei verið neitt Covid. Hingað streymir varningur frá Kína í tonnavís, verslun og þjónusta hafa sjaldan verið blómlegri, heitir pottar seljast eins og heitar lummur og […]
Frumvarp um ferðaábyrgðasjóð samþykkt á Alþingi
Aðfaranótt þriðjudagsins 30. júní sl. var samþykkt breyting á lögum um pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og lögum um ríkisábyrgðir (ferðaábyrgðarsjóður). Lögin hafa ekki hlotið staðfestingu forseta en það ætti að gerast á næstu dögum og í kjölfarið mun ráðherra á næstu vikum gefa út reglugerð sem mælir fyrir um framkvæmd laganna. Í framhaldi af því […]
Leiðsögunám á háskólastigi
Leiðsögunámi á háskólastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Í ljósi aðstæðna bjóðast einstaklingum í atvinnuleit innan ferðaþjónustunnar sömu kjör. Leiðsögunámið er tveggja missera námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi. Kynnið ykkur málið nánar hér. Umsækjendur sem eiga rétt á þessum kjörum […]
Lög um úrræði um greiðsluskjól samþykkt
Hinn 16. júní sl. samþykkti Alþingi lög um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Lögin fela í sér tímabundið úrræði, svokallað greiðsluskjól. Greiðsluskjólið er hugsað sem úrræði handa fyrirtækjum í sérstakri neyð vegna kórónukreppunnar. Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem koma fram í 2. gr. laganna, geta fyrirtækin fengið greiðsluskjól í áföngum í allt að ár. Hlekkur: […]
Útskrift úr Leiðsöguskólanum júní 2020
Útskrift úr Leiðsöguskólanum júní 2020 | Menntaskólinn í Kópavogi Þann 10. júní voru 30 leiðsögumenn útskrifaðir frá Leiðsöguskólanum. Tuttugu útskrifuðust sem leiðsögumenn ferðafólks og tíu gönguleiðsögumenn. Vegna samkomubanns þurfti að fresta mörgum æfingaferðum vorannar. Undanfarnar vikur hafa verið ansi annasamar hjá nemendum en eftir að reglur um samkomubann voru rýmkaðar hafa þeir verið á ferðinni […]