Fagorðalisti ferðaþjónustunnar hlýtur viðurkenningu
Íslensk málnefnd veitti í gær Hæfnisetri ferðaþjónustunnar og Samtökum ferðaþjónustunnar viðurkenningu fyrir kennsluvefinn „Orðin okkar á íslensku“ sem ætlað er að auðvelda erlendu starfsfólki íslenskan orðaforða og auðvelda samskipti á vinnustað. Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, og María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF og formaður stjórnar Hæfnisetursins, veittu viðurkenningunni viðtöku. Hér má nálgast fagorðalistann.
Óskað eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna SAF 2019
Samtök ferðaþjónustunnar afhenda á ári hverju nýsköpunarverðlaun samtakanna fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að 300.000 krónum fyrir verkefni sem stjórn sjóðsins telur að skari fram úr hverju sinni. Verðlaunin verða afhent við […]
Hitamælir: Alþjóðlegir straumar leika um landið
Það hafa sannanlegar leikið alþjóðlegir straumar um Ísland undanfarin misseri. Litríkar tónlistar- og menningarhátíðir laða að og leiða saman innlenda og erlenda gesti; um allt land. Það gerir líka alþjóðleg samvinna en fyrir skömmu tók forsætisráðherra á móti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands á Þingvöllum sem sat árlegan sumarfund forsætisráðherra norðurlandanna ásamt hópi af norrænum forstjórum. […]
Fiskabúrið er nýr möguleiki í rafrænni fræðslu
[:IS]Hæfnisetur ferðaþjónustunnar kynnir nýjan möguleika í rafrænni fræðslu, svokallað fiskabúr. Geymir fiskabúrið safn heita yfir matfiska sem notaðir eru í réttum veitingastaða. Markmiðið með fiskabúrinu er að styrkja starfsfólk í samskiptum við gesti og þar með auka gæði þjónustu við þá. Heitin eru á íslensku, ensku, pólsku og spænsku, en hlusta má á framburð orðanna […]
Bílastæðagjöld í Vatnajökulsþjóðgarði og Þingvallaþjóðgarði
[:IS]Samtök ferðaþjónustunnar og bílaleigunefnd SAF hafa komist að rammasamkomulagi við þjóðgarða Þingvalla og Vatnajökuls um fyrirkomulag á greiðslum bílastæðagjalda sem ekki innheimtast af ökumönnum bifreiða á gjaldskyldum bílastæðum þjóðgarðanna. Samkomulagið mun taka gildi 1.7.2019 og gengur út á að bílaleigur sem skrá sig á greiðslusvæði þjóðgarðanna fá 50% afslátt af þeim viðburðum sem sendir verða […]
Vopn gegn vændi – fræðsluefni
Verkefnið Vopn gegn vændi og kynlífsmansali er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Samtaka ferðaþjónustunnar.Verkefnið byggir á fræðsluefni fyrir hótel og gististaði um vændi og kynlífsmansal. Markmiðið með gerð efnisins er að starfsfólk hótela, gististaða og veitingastaða þekki einkenni vændis og kynlífsmansals og tilkynni það til lögreglu ef grunur leikur á að slíkt fari fram […]