Ferðamenn geta heitið ábyrgri ferðahegðun strax við komuna til Íslands
[:IS]Í sumar mun Íslandsstofa ásamt samstarfsaðilum halda áfram með herferðina The Icelandic Pledge sem hvetur ferðamenn til að vinna þess heit að ferðast um landið með ábyrgum hætti. Hnappur hefur verið settur upp á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við Isavia og varð ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, í dag fyrst til þess að […]
HÍ og FA gera samning um hæfnigreiningar
[:IS]Háskóli Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa gert með sér samning um hæfnigreiningu sex starfa er tengjast skipulagningu fagháskólanáms við skólann. Um er að ræða störf í ferðamennsku, leikskólafræði og heilbrigðisgagnafræði en til stendur að hæfnigreina síðar störf í iðn- og tæknigreinum. Fagháskólanám er starfstengt nám á fræðasviði háskóla. Niðurstöður úr hæfnigreiningu starfa eru nýttar til […]
Samtök ferðaþjónustunnar fagna hertu eftirliti með heimagistingu
[:IS]Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar sendi frá sér eftirfarandi ályktun í dag, 15. júní 2018: — Samtök ferðaþjónustunnar fagna hertu eftirliti með heimagistingu Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar fagnar sérstöku átaksverkefni um hert eftirlit með heimagistingu sem ríkisstjórnin samþykkti nýverið, og þakkar ráðherra ferðamála fyrir frumkvæði í málinu. Samtök ferðaþjónustunnar hafa lengi bent á þörfina fyrir stóraukið eftirlit með […]
Hefur ferðaþjónustan náð flughæð?
[:IS]Í dag flutti Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, erindi á fjölmennum morgunfundi Isavia þar sem farþegaspá fyrir árið var kynnt. Ljóst er að hægja mun á fjölgun í komum erlendra ferðamanna til landsins á árinu og ástæða til að staldra við. Yfirskrift erindisins Bjarnheiðar var „Hefur ferðaþjónustan náð flughæð?“ og velti hún upp spurningum eins […]
Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar 2017
[:IS]Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar fyrir árið 2017 er komin út. Fyrsta starfsárið er afstaðið og á heildina litið gengur verkefnið vel og það vekur verðskuldaða athygli fyrir nýja nálgun fyrir atvinnugrein sem er í örum vexti. Smelltu hér til að nálgast ársskýrsluna.[:]
Árangursmælikvarðar fyrir fyrirtæki
[:IS]Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur þróað árangursmælikvarða fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu til að mæla árangur fræðslu og hvetur fyrirtæki í ferðaþjónustu til að nýta sér þá. Gögnin eru opin til afnota og má nota að vild. Síðan er í vinnslu og munu fleiri mælikvarðar og gagnlegt efni bætast við. Sjá nánar hérhttp://haefni.is/maelikvardar/[:]