SAF ítreka mikilvægi heilbrigðs rekstrarumhverfis til framtíðar
Á samráðsgátt stjórnvalda birtust 25. september 2023 áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Fyrirhugaðar breytingar varða meðal annars breytingar á lögum um gistináttaskatt og áfengisgjald. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skiluðu inn umsögn um áformin 6. október 2023. Gistináttaskattur brenglar samkeppnisstöðu gististaða Í umsögn sinni benda SAF á vankanta […]
Óskað eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar 2023
Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að 300.000 krónum fyrir verkefni sem stjórn sjóðsins telur að skari fram úr hverju sinni. Félagsmenn í SAF og aðrir áhugasamir […]
Á ferð og flugi um Austurland
Á dögunum gerðu Samtök ferðaþjónustunnar víðreist um Austurland þar sem formaður og starfsfólk samtakanna tóku hús á fyrirtækjum í ferðaþjónustu og hittu forystufólk sveitarfélaganna. Samhliða fór haustfundur hótel- og veitingamanna fram á Hallormsstað. Áskoranir og tækifæri á Austurlandi SAF hafa reglulega farið í vísitasíur um landið þar sem tilefnið er að efla tengslin við félagsmenn […]
Skrum um ferðaþjónustu
Það er óumdeilt að stóra verkefnið fram undan er að ná niður verðbólgu og vaxtastigi í landinu. Til þess að vinna bug á vandamálum er nauðsynlegt að þekkja og horfast í augu við rót þeirra. Það er á hinn bóginn alveg ljóst að það er verulegur skortur á sameiginlegri sýn á rótum þess vanda sem […]
Auknum álögum mótmælt
Um miðjan september mælti fjármála- og efnahagsráðherra fyrir stjórnarfrumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024. Frumvarpinu er ætlað að hafa bæði áhrif á tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Samtök ferðaþjónustunnar skiluðu umsögn um frumvarpið 3. október 2023. Hlekkur: Umsögn SAF um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024. […]
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að: Öryggi ferðamanna. Náttúruvernd og uppbyggingu. Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru. Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra […]