Höldur handhafi hvatningarverðlauna Ábyrgrar ferðaþjónustu 2022
Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu fór fram föstudaginn 28. janúar sl., en á deginum afhenti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku, en að þessu sinni féllu verðlaunin Höldi – bílaleigu Akureyrar í skaut. Margar frambærilegar tilnefningar bárust dómnefnd að þessu sinni sem gefa tilefni til bjartsýni og […]
Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram miðvikudaginn 23. mars 2022 á Grand hótel Reykjavík. Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Í kjörnefnd sitja: Eva María Þórarinsdóttir Lange, Pink Iceland Rannveig Grétarsdóttir, Elding hvalaskoðun Steingrímur Birgisson, Höldur bílaleiga Kjörnefnd auglýsir hér […]
Vinnusóttkví og sóttkví þríbólusettra
Nýlega var ákveðið að mildari reglur gildi í sóttkví fyrir þau sem hafa fengið annað hvort þrjá skammta af bóluefni eða sýkst af COVID-19 og fengið að auki tvo skammta af bóluefni. Þeim er m.a. heimilt að sækja vinnu en verða að bera grímu. Þau eru skráð í sóttkví og verða að fara í PCR […]
Ferðaþjónusta nýrra tíma
Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar 2022 fer fram þriðjudaginn 11. janúar kl. 9.00 í beinu streymi á Facebook-síðu Samtaka ferðaþjónustunnar. Hlekkur: Ferðaþjónusta nýrra tíma – bein útsending! Á Nýársmálstofunni verður horft inn í nýtt ár og við munum velta upp helstu tækifærum og áskorunum framundan. Í ár líkt og fyrri ár er nýársfundurinn haldin í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, […]
Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu – óskað eftir tilnefningum
Þann 19. janúar næstkomandi verður Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn hátíðlegur í Grósku. Af því tilefni er það fyrirtæki verðlaunað sem þykir hafa skarað frammúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og framúrskarandi samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu á árinu. Tilnefningarnar geta verið frá aðilanum sjálfum eða öðrum og er hægt að tilnefna fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir, einstaklinga eða […]
Við áramót
Það er ekki mörgu hægt að bæta við það sem sagt hefur verið og skrifað um þær hamfarir sem dunið á ferðaþjónustunni undanfarin tvö ár. Þetta tímabil hefur einkennst af stöðugri baráttu, hæðum og lægðum, vonum og vonbrigðum, svartsýni á köflum, en þó miklu oftar bjartsýni. Með hana að vopni, höldum við nú inn í […]