Jólakveðja SAF 2021
Samtök ferðaþjónustunnar óska þér og þínum gleðilegra jóla og þakka fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Megi nýtt ár færa okkur öllum gleði og gæfu, farsæld og ferðamenn! Stjórn og starfsfólk Samtaka ferðaþjónustunnar
Menntaverðlaun atvinnulífsins 2022 – opið fyrir tilnefningar
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 2. febrúar 2022. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 21. desember nk. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2022, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Helstu viðmið […]
Icelandic Lava Show hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2021
Icelandic Lava Show hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2021. Samtök ferðaþjónustunnar afhenda verðlaunin á afmælisdegi samtakanna, 11. nóvember ár hvert. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti Icelandic Lava Show verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. SAF afhenda Nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan samtakanna til nýsköpunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja […]
Mice-land 2021
Íslandsstofa (Meet in Reykjavík) og Samtök ferðaþjónustunnar bjóða þér ásamt gesti á fund um framtíðarhorfur í ráðstefnu-, viðburða- og hvataferðaþjónustu (MICE) hér á landi. Fundurinn fer fram í Silfurbergi Hörpu 29. september frá kl. 15-18. Í lok fundar verða laufléttar veitingar og netagerð í boði Meet in Reykjavík og SAF. Aðalfyrirlesari fundarins er Annika Rømer […]
Bein útsending frá Ferðaþjónustudeginum 2021
Ferðaþjónustudagurinn 2021 fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 16. september kl. 14.00 undir yfirskriftinni Viðspyrna í ferðaþjónustu. Forystufólk stjórnmálaflokkanna tekur þátt í pallborðsumræðum þar sem sjónum verður beint að viðspyrnu í ferðaþjónustu, áætlunum um árangur og leiðum að settu marki!Fylgstu með Ferðaþjónustudeginum 2021 í þráðbeinni útsendingu úr Hörpu kl. 14.00! Fylgstu með Ferðaþjónustudeginum 2021 […]
Ferðaþjónustudagurinn 2021
Leiðtogar stjórnmálaflokka mætast í pallborðsumræðum á Ferðaþjónustudeginum í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 16. september klukkan 14.00. Í umræðunum verður sjónum beint að því hvernig viðspyrnu í ferðaþjónustu verður háttað á komandi kjörtímabili. Hverjar eru áherslur og áætlanir stjórnmálaflokkanna þegar kemur að málefnum ferðaþjónustunnar? Hvers má vænta af næstu ríkistjórn þegar kemur að rekstrarumhverfi fyrirtækja í […]