Þetta er ekki (alveg) búið
Þrátt fyrir að bóluefnasamningur við Pfizer yrði mjög mikilvægt og ánægjulegt skref er ljóst að fjölmargt annað þarf að koma til eigi viðspyrna ferðaþjónustu að ná sér hratt og vel á strik í sumar. Þar má helst nefna þrennt. Í fyrsta lagi þarf að framlengja ýmsar núverandi aðgerðir til að koma til móts við lengri […]
Íslandshótel hljóta Menntaverðlaun atvinnulífsins 2021
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í dag fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Íslandshótel er Menntafyrirtæki ársins og Domino’s Menntasproti ársins. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhentu verðlaunin á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Sjónvarpi atvinnulífsins í morgun. Menntaverðlaun atvinnulífsins 2021 Íslandshótel eru menntafyrirtæki atvinnulífsins […]
Hvers vegna að styðja við ferðaþjónustu?
Það er eðlilegt að fólk spyrji hvert sé virði þess að styðja við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki í þeirri heimskreppu sem nú gengur yfir, enda krefst það mikilla fjárútláta af hálfu ríkisins. Hvað fær almenningur á Íslandi fyrir þá peninga sem lagðir eru í aðgerðir stjórnvalda? Til að svara spurningunni er nauðsynlegt að þysja út, horfa á […]
Umsögn SAF um frumvarp um stofnun Hálendisþjóðgarðs
SAF skiluðu í gær umsögn til Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð. Hægt er að lesa umsögnina hér á vef Alþingis. Á undanförnum mánuðum hefur farið fram mikil undirbúningsvinna við gerð umsagnarinnar og áhersla lögð á að leiða fram skoðanir og ábendingar félagsmanna samtakana gagnvart efni frumvarpsins. Fagnefndir SAF hafa fjallað […]
Hótel og veitingasamtök í Evrópu krefjast lausna af hálfu ESB
HOTREC, Samtök hótel og veitingasamtaka í Evrópu, hafa sent frá sér yfirlýsingu ásamt tólf öðrum evrópusamtökum fyrirtækja í matvælaframleiðslu, dreifingu og verslun þar sem þess er krafist að þegar í stað verði settur á fót starfshópur stofnana Evrópusambandsins til að vinna að vegvísi til að endurreisa virðiskeðju hótel- og veitingaþjónustu. SAF er aðili að yfirlýsingunni […]
Skráning hafin á Menntadag atvinnulífsins 2021
Menntadagur atvinnulífsins fer fram fimmtudaginn 4. febrúar 2021 undir yfirskriftinni „Færni framtíðar“. Þetta er í áttunda sinn sem Menntadagurinn er haldinn, en að þessu sinni fer dagurinn að öllu leyti fram í Netheimum. Dagskráin er fjölbreytt og áhugaverð og því vert að taka daginn frá! Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar, Samorku, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka […]