Jólakveðja SAF 2020
Kæru félagsmenn, Stjórn og starfsfólk Samtaka ferðaþjónustunnar óskar ykkur gleðilegra jóla og vonar að þið njótið hátíðanna sem best. Umfram allt óskum við ykkur farsæls komandi árs og þökkum samstarfið á því sem er nú loksins að líða. Þrátt fyrir áskoranirnar hefur verið stórkostlegt að vinna með ykkur og finna á hverjum degi kraftinn, baráttuþrekið […]
Fyrirtæki geta sótt um aukinn staðgreiðslufrest fyrir 15. janúar
Launagreiðendur sem hafa orðið fyrir miklu tekjufalli á árinu 2020 geta óskað eftir auknum fresti til að standa skil á staðgreiðslu skatta af launum og tryggingagjalds fram á næsta sumar. Síðastliðið vor var fyrirtækjum heimilað að óska eftir fresti á greiðslu afdreginnar staðgreiðslu og tryggingagjalds sem að öðrum kosti féllu í gjalddaga á tímabilinu 1. […]
OECD um NæstaSkref.is
Nýlega kom út skýrsla á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD, um miðlun upplýsinga í tengslum við náms- og starfsval – The role of labour market information in guiding educational and occupational choices. Þar er sjónum beint að mikilvægi þess að slíkar upplýsingar nýtist almenningi sem best og hvernig vefsvæði, sem byggð hafa verið upp í flestum […]
Opnað fyrir umsóknir um lokunarstyrki
Skatturinn hefur opnað fyrir móttöku á umsóknum um lokunarstyrki sem gilda vegna stöðvunar á starfsemi frá og með 18. september, sbr. breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 38/2020 með lögum nr. 119/2020. Allir þeir rekstraraðilar sem var gert skylt að stöðva starfsemi sína í sóttvarnarskyni samkvæmt ákvörðunum heilbrigðisráðherra vegna COVID-19 geta sótt um […]
Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu
Nú er opið fyrir tilnefningar til þess fyrirtækis sem ykkur þykir hafa skarað framúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og framúrskarandi samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu. Tilnefningarnar geta verið frá aðilanum sjálfum eða öðrum og er hægt að tilnefn fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir, einstaklinga eða alla þá sem þykja hafa unnið markvisst að jákvæðri þróun ferðaþjónustu og […]
Fjármögnun Hæfniseturs ferðaþjónustunnar tryggð til 2023
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, undirrituðu nýlega þjónustusamning um áframhaldandi starf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar til næstu þriggja ára. Samningurinn felur í sér áframhaldandi uppbyggingu á hæfni starfsmanna í íslenskri ferðaþjónustu með enn auknum stafrænum verkfærum í fræðslu sem og uppbyggingu þrepaskipts náms í samstarfi við fræðsluaðila. Áhersla […]