Frumvarp um viðspyrnustyrki birt á vef Alþingis
Í gær 24. nóvember 2020 var frumvarp til laga um viðspyrnustyrki birt á vef Alþingis. Sjá hér. https://www.althingi.is/altext/pdf/151/s/0390.pdf Að mörgu leyti er frumvarpið mjög líkt lögunum um tekjufallsstyrkina. Frumvarpið gildir um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Í frumvarpinu er lagt til að rekstraraðili geti fengið viðspyrnustyrk úr ríkissjóði vegna hvers […]
Ríkisstjórnin kynnir viðspyrnustyrki til fyrirtækja o.fl. aðgerðir
Ríkisstjórnin kynnti í dag viðspyrnustyrki til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Rekstraraðilar sem hafa orðið fyrir a.m.k. 60% tekjufalli í almanaksmánuði á tímabilinu frá 1. nóvember 2020 til og með 31. maí 2021, samanborið við sama almanaksmánuð árið 2019, geta fengið styrk úr ríkissjóði til að mæta rekstrarkostnaði í mánuðinum. […]
Ferðaþjónustan og fólkið til framtíðar
Í kjölfar gríðarlegra áfalla í ferðaþjónustu undanfarið, einkum og sérílagi vegna Covid-19 faraldursins er ljóst að þorri starfsfólks í ferðaþjónustu stendur frammi fyrir atvinnumissi. Mikilvægt er að þessi hópur nýti tímann til að styrkja sig á vinnumarkaði enda hefur sí- og endurmenntun sjaldan verið mikilvægari. Þegar fram líða stundir og viðspyrna hefst í greininni þarf […]
Hlutabótaleið framlengd um allt að 6 mánuði
SAF vekja athygli á því að félags- og barnamálaráðherra hefur sett af stað vinnu við að framlengja hlutabótaleiðina um allt að sex mánuði til viðbótar. Áður var hlutabótaleið í gildi til 31. desember 2020 en nú er miðað er að hún verði virk til 1. júní 2021. Tilkynnt var um breytinguna á vef stjórnarráðsins þann […]
Tekjufallsstyrkir – reiknivél og helstu atriði
Hinn 5. nóvember 2020 voru samþykkt lög um tekjufallsstyrki á Alþingi. Úrræðið er ætlað fyrir einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Markmið laganna er að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og viðhalda atvinnustigi. Orðskýringar og skilyrði laganna Í 3. gr. laganna er atvinnurekstur eða […]
Íslensk ferðaþjónusta hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2020
Íslensk ferðaþjónusta hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2020. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, forsetafrú og velgjörðarsendiherra ferðamennsku og sjálfbærrar þróunar hjá Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNWTO) tilkynntu um verðlaunin í myndbandi sem Samtök ferðaþjónustunnar gáfu út í dag. Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar eru veitt fyrir athyglisverðar nýjungar í ferðaþjónustu og er ætlað að hvetja frumkvöðla og […]