Samkeppnishæfni flugs og uppbygging flugvalla
Í samgönguáætlun sem lögð hefur verið fram er gert ráð fyrir því að nauðsynleg uppbygging varaflugvalla til að tryggja flugöryggi verði greidd af flugrekendum með nýju gjaldi, svonefndu „hóflegu varaflugvallargjaldi“. Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla því harðlega að gert sé ráð fyrir því að grunnþættir í flugöryggi landsins skuli greiddir með sértækum gjöldum á ferðaþjónustufyrirtæki. Alvarleg áhrif […]
Sjóböðin á Húsavík hljóta nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2019
Sjóböðin á Húsavík hljóta nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2019. Samtök ferðaþjónustunnar afhenda verðlaunin á afmælisdegi SAF, 11. nóvember ár hvert. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Sjóböðunum á Húsavík verðlaunin við hátíðlega athöfn á Center Hotels við Laugaveg í Reykjavík í dag. SAF afhenda nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan samtakanna […]
Afhending nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar 2019
Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar verða afhent við hátíðlega athöfn á afmælisdegi Samtaka ferðaþjónustunnar, mánudaginn 11. nóvember. Verður þetta í 16. skipti sem SAF veita fyrirtæki innan samtakanna nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar, en forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaunin. Í ár bárust 32 tilnefningar til nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar frá félagsmönnum í SAF. Að þessu sinni hefur dómnefnd tilnefnt þrjú fyrirtæki […]
Samkeppnishæfni ferðaþjónustu er samfélagsmál
Í gær var nýtt íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki kynnt á blaðamannafundi í Perlunni. Þetta boðaða flugfélag er eitt af fjölmörgum fyrirtækjum sem hafa trú á Íslandi sem áfangastað og vilja taka þátt í uppbyggingu ferðamannalandsins til framtíðar. Á undanförnum tíu árum hefur ferðaþjónustan byggst upp í lykilatvinnugrein á undraverðum hraða. Það hefði ekki verið mögulegt nema fyrir […]
Upplýsingafundur um peningaþvætti
Fimmtudaginn 31. október fór fram upplýsingafundur um peningaþvætti í Húsi atvinnulífsins sem Samtök ferðaþjónustunnar stóðu að ásamt Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum iðnaðarins. Á fundinum var farið yfir skyldur tilkynningaskyldra aðila innan raða samtakanna vegna stöðu Íslands á gráum lista Financial Action Task Force (FATF) vegna ónógra varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Eftirtaldir […]
Forvarnir og fyrsta hjálp – bein útsending
Fylgjast má með beinni útsendingu frá fundinum Forvarnir og fyrsta hjálp á Facebooksíðu Samtaka ferðaþjónustunnar, eða með því að smella HÉR.