Sameiginlegur fundur VMST og SAF
Samtök ferðaþjónustunnar og Vinnumálastofun standa fyrir sameiginlegum fundi miðvikudaginn 13. mars. Fundurinn fer fram í Netheimum á ZOOM og hefst kl. 8.30. Á fundinum verða úrræði Vinnumálstofnunar kynnt, eins og EURES, ráðningarstyrkir, þjónusta við flóttafólk og atvinnuleyfi ásamt því að rými verður fyrir spurningar. Hlekkur: Taktu þátt í fundinum á ZOOM. Dagskrá: Soffía Gísladóttir frá […]
Erlend kortavelta árið 2023
Samtök ferðaþjónustunnar og Rannsóknasetur verslunarinnar hafa tekið höndum saman og munu birta áhugaverðar staðreyndir um erlenda kortaveltu fyrir árið 2023 úr gögnum Veltunnar sem byggja aðeins á upplýsingum frá innlendum færsluhirðum. Veltan er gagnatorg Rannsóknaseturs verslunarinnar sem er notað af stjórnendum í íslensku atvinnulífi til þess að fylgjast með stærð og þróun smásölumarkaða á Íslandi. […]
Ferðaþjónusta, innflytjendur og íslenskt samfélag
Undanfarið hafa ferðaþjónusta og innflytjendur átt það sameiginlegt að vera áberandi í fjölmiðlaumræðu og í spjalli á kaffistofum landsmanna með einum eða öðrum hætti. Heyrst hefur að ferðaþjónusta standi á bak við meginþorra þess vaxtar sem orðið hefur í fjölda starfandi innflytjenda hér á landi frá árinu 2017. Þessir sömu innflytjendur eru auk ferðaþjónustunnar sjálfrar […]
Samráðsfundur norrænna systursamtaka SAF í Reykjavík
Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring – samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, sem haldinn var í Reykjavík að þessu sinni. Samtök ferðaþjónustunnar tóku þar á móti forystufólki í ferðaþjónustu á hinum Norðurlöndunum; Horesta frá Danmörku, NHO Reiseliv frá Noregi, Visita frá Svíþjóð og MaRa frá Finnlandi. Norrænu samtökin fjögur eru ólík SAF að því leyti að […]
Skortur á starfsfólki dragbítur á vöxt hagkerfisins
Menntadagur atvinnulífsins var haldinn í ellefta sinn í dag undir yfirskriftinni Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins. Á fundinum kynntu SA og aðildarsamtök uppfærða greiningu á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar svo vinnuaflsskortur verði ekki hamlandi fyrir vöxt í atvinnu- […]
Samtal um aðgerðaáætlun í ferðamálum til 2030
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu og má sjá dagskrá hér fyrir neðan. Fyrstu viðkomustaðir í hringferð ráðherra eru Akureyri og Sauðárkrókur. Fyrstu drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Drögin […]