Vinnu við aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030 senn að ljúka
Nú sígur á seinni hluta vinnu við aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030, sem staðið hefur yfir frá því í maí og SAF hefur tekið þátt í ásamt fulltrúum ríkis og sveitarfélaga. Vinnuhóparnir sjö skiluðu drögum að tillögum til stýrihóps verkefnisins þann 15. janúar og stýrihópurinn vinnur nú að samræmingu og yddun aðgerða sem til stendur […]
Bláa lónið hlaut hvatningarverðlaunin ábyrgrar ferðaþjónustu 2024
Dagur ábyrgar ferðaþjónustunnar fór fram miðvikudaginn 17. janúar sl.. Við það tilefni hlaut Bláa Lónið sérstaka viðurkenningu fyrir frábær störf í þágu sjálfbærni, hringrásarhagkerfis og nærandi ferðaþjónustu. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti hvatningarverðlaunin við hátíðlega athöfn og húsfylli í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Viðburðurinn í ár var samstarfsverkefni Íslandsstofu og Íslenska ferðaklasans, en Samtök […]
Umsögn SAF um vindorku
Í byrjun janúar birtu stjórnvöld frumvarp um breytingar á rammaáætlun og tillögu að þingsályktunartillögu um vindorku. Aðdragandi þessara mála hefur verið langur enda vindorka umdeilt málefni. Samtök ferðaþjónustunnar hrósa stjórnvöldum fyrir ferlið enda hafa þau reynt að fá álit sem flestra hagsmunaaðila við undirbúning málsins. Vonandi verður þetta fordæmi þegar kemur að öðrum stórum málum. […]
Aðalfundur SAF 2024
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2024 fer fram fimmtudaginn 21. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Fagnefndarfundir fara fram sama dag. Dagskrá fundanna og nánari upplýsingar verða kynnt er nær dregur, en skráning á fundinn er hafin. Þá auglýsir kjörnefnd eftir framboðum til formanns SAF og í stjórn samtakanna fyrir starfsárin 2024 – 2026. Á aðalfundi SAF eru […]
Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2024 fer fram fimmtudaginn 21. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Í kjörnefnd sitja: Eva María Þórarinsdóttir Lange, Pink Iceland (eva@pinkiceland.is) Lára B. Pétursdóttir, Sena (lara@sena.is) Steingrímur Birgisson, Höldur bílaleiga (steini@holdur.is) […]
Staðan að styrkjast en stöðugleiki er mikilvægastur
Samtök ferðaþjónustunnar, Íslenski ferðaklasinn og KPMG héldu í morgun sína árlegu Nýársmálstofu ferðaþjónustunnar. Málstofan var haldin í höfuðstöðvum KPMG í Borgartúni 27 og var afar vel sótt, en hún markaði jafnframt upphaf ferðaþjónustuvikunnar 2024. Á fundinum voru kynntar niðurstöður viðhorfskönnunar sem KPMG framkvæmdi meðal ferðaþjónustufyrirtækja um áramótin, auk þess sem rætt var um mannauðsmál innan […]