Skráning á gistináttaskattsskrá
Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á frétt Skattsins um skráningu á gistináttaskattsskrá. Þeir sem eru skyldugir til að standa skil á gistináttaskatt í ríkissjóð þurfa að nýskrá eða endurskrá sig. Fyrsti gjalddagi gistináttaskatts á árinu 2024 er 5. apríl nk. Gistináttaskattur kom aftur til framkvæmda frá og með 1. janúar 2024 og ber því að innheimta gistináttaskatt […]
Umfjöllun um ferðaþjónustu í fjármálastöðugleikariti Seðlabankans 2024/1
Seðlabankinn birti í dag ritið Fjármálastöðugleika 2024/1. Umfjöllun um ferðaþjónustu er þar í takt við það sem SAF hafa bent á undanfarin misseri. Í ritinu segir meðal annars: ,,Óvissa um alþjóðlegar hagvaxtarhorfur er nokkur og mun líklega smitast yfir á innlendar útflutningsatvinnugreinar, einkum ferðaþjónustuna.” ,,Sterkar vísbendingar eru um að horfur í ferðaþjónustunni fyrir þetta ár […]
Hvað eru nokkrir loðnubrestir á milli vina?
Loðnan virðist ekki ætla að láta sjá sig við Íslandsstrendur í ár. Gerðir út stórir leitarflokkar með tilheyrandi kostnaði sem freistuðu þess að finna loðnutorfur, helst af öllu hrygningarloðnu – sem skapar mestu verðmætin. Ávallt er mikið fjallað um loðnubresti í fjölmiðlum, um afleiðingar þeirra á sveitarfélög, ríkissjóð, fyrirtæki og almenning. Allt er þetta eðlilegt […]
Ferða- og kaupsýningin ITB Berlín 2024
Á dögunum lögðu framkvæmdastjóri og starfsmenn Samtaka ferðaþjónustunnar land undir fót og fóru á ITB Berlín í Þýskalandi. ITB Berlín er ein stærsta ferða- og kaupsýning í heimi, en í ár voru yfir 5500 sýnendur frá 170 löndum viðstaddir til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum. Auk þess að vera ein stærsta ferðasýning í […]
Stjórnarkjör á aðalfundi SAF 2024
Í aðdraganda aðalfundar SAF 2024 sem fram fer fimmtudaginn 21. mars hefur kjörnefnd verið að störfum sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Kjörnefnd hefur þegar auglýst eftir framboðum til stjórnar og formanns SAF fyrir starfsárin 2024 – 2026. Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað […]
Framboð í fagnefndir fyrir starfsárið 2024 – 2025
Á fundi faghópa í tengslum við aðalfund SAF fimmtudaginn 21. mars eru kosnar fagnefndir fyrir starfsárið 2024-2025. Fagnefndirnar eru mikilvægur liður í grasrótarstarfi samtakanna en þar gefst fyrirtækjum færi á að ræða sameiginleg álitamál og úrlausnarefni og stefnumarkandi málefni er varða viðkomandi starfsgreinar innan ferðaþjónustunnar. Innan SAF starfa átta fagnefndir: afþreyingarnefnd, bílaleigunefnd, ferðaskrifstofunefnd, flugnefnd, gististaðanefnd, […]