Fræðsla til framtíðar
Með verkefninu Fræðsla til framtíðar býður Hæfnisetur ferðaþjónustunnar stjórnendum lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja (<50 starfsmenn) ráðgjöf og aðstoð í allt að 20 klst. við að koma á markvissri fræðslu og þjálfun starfsfólks innan sinna fyrirtækja. Markmið Fræðslu til framtíðar er að styðja við og valdefla stjórnendur fyrirtækja til að sjá sjálfir um fræðslugreiningu innan fyrirtækis […]
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar – Ráðningar og Z kynslóðin
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna bjóða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar miðvikudaginn 10. apríl. Fundurinn verður í streymi og hefst kl. 9.00. Á fundinum verður áhersla á undirbúning ferðaþjónustuaðila fyrir vertíðina – hvað stjórnendum ber að hafa í huga varðandi vinnumarkaðsmál og ráðningu sumarstarfsfólks, hvernig sé hægt að halda árangursrík starfsviðtöl ásamt hugvekju um breyttar […]
Ályktun aðalfundar SAF 2024: Samkeppnishæfni sé leiðarstef í ákvarðanatöku
Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn var þann 21. mars s.l., var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: Ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar 2024 Samkeppnishæfar útflutningsgreinar eru grundvöllurinn að lífskjörum þjóðarinnar. Þar gegnir ferðaþjónusta lykilhlutverki, en greinin hefur umbylt efnahag þjóðarinnar á undanförnum 15 árum. Útflutningsverðmæti ferðaþjónustu voru 598 milljarðar króna á síðasta ári og greinin stóð undir […]
Pétur Óskarsson nýr formaður SAF
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2024 fór fram á Hilton Reykjavík Nordica í gær, fimmtudaginn 21. mars. Að morgni aðalfundardags fóru fram fundir í faghópum SAF þar sem málefni undirgreina ferðaþjónustunnar voru rædd. Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um 3 meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára ásamt því að kjörinn […]
Dagskrá aðalfundar SAF 2024
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2024 fer fram fimmtudaginn 21. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Hlekkur: Skráðu þig á aðalfund SAF 2024! Fagfundir hefjast kl. 10.00 og fara fram í fundarsölum á 2. hæð á Hilton Reykjavík Nordica. Aðalfundur SAF fer síðan fram kl. 14.00 í aðalsal hótelsins á 1. hæð. Í hádeginu verður boðið upp á […]
Rafrænar kosningar á aðalfundi SAF 2024
Rafræn kosning til stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar er hafin og stendur fram yfir kynningu frambjóðenda á aðalfundi samtakanna sem fram fer fimmtudaginn 21. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Í ár verður kosið um þrjú almenn stjórnarsæti, til tveggja ára. Alls bárust sex framboð til stjórnar SAF. Eitt framboð barst til formanns SAF og er Pétur Óskarsson, […]