Lokaritgerð um ferðamál á Íslandi verðlaunuð
Á dögunum veittu Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) verðlaun fyrir framúrskarandi lokaritgerð um ferðamál á Íslandi. Julia Kienzler hlaut verðlaun fyrir MS-ritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði frá líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður RMF og Pétur Óskarsson formaður SAF afhentu Juliu verðlaunin. Ritgerð Juliu nefnist „Almannarétturinn á tímum vaxtar […]
Sjálfbærniráðstefna sótt í Svíþjóð
Undir lok aprílmánaðar lögðu starfsmenn SAF, þau Ágúst Elvar Bjarnason og María Rut Ágústsdóttir, verkefnastjórar, leið sína á ráðstefnu Global Sustainable Tourism Council (GSTC) sem haldin var í Stokkhólmi. GSTC er leiðandi stofnun í þróun sjálfbærnistaðla en stofnunin þróar og stjórnar alþjóðlegum stöðlum fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu, sem kallast GSTC viðmiðin (e. GSTC Criteria). Viðmiðunum er […]
Ferðaþjónustan og vaskurinn
Í gær buðu Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) til morgunfundar sem tileinkaður var sérstakri umræðu um íslenska ferðaþjónustu og virðisaukaskatt. Við í ferðaþjónustunni erum vön að fjalla um skatta- og gjaldamál greinarinnar, enda viljum við vera samkeppnishæf og öflug atvinnugrein sem skilar sanngjörnum hluta þeirra verðmæta sem við sköpum til ríkis og sveitarfélaga í formi skatta eða […]
Hækkun VSK á ferðaþjónustu í 24% hefði neikvæð áhrif á skatttekjur og aðra efnahagsþætti
Undanfarin misseri hafa raddir í stjórnkerfinu á ný viðrað þá hugmynd að hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu í 24% gæti verið hentug leið til að auka tekjur ríkissjóðs af greininni. Er þar gjarnan vísað til lægra VSK þreps ferðaþjónustu sem einhvers konar “skattaafsláttar” sem valdi því að ríkið gefi eftir miklar tekjur. Sá vandi er þó […]
Fjallað um gervigreind, stafræna markaði og virðisaukaskatt á vorþingi HOTREC í Búdapest
Formaður og framkvæmdastjóri SAF sóttu 88. þing HOTREC, hótel og veitingasambands Evrópu, í Búdapest í lok apríl. Á þinginu var að venju fjallað um ýmsar áskoranir sem steðja að gisti- og veitingarekstri í Evrópu, laga- og reglusetningu Evrópusambandsins á ýmsum sviðum er snerta fyrirtækjareksturinn með beinum hætti og þróun markaðarins í heild. Þá var sjónum […]
Háskóli Íslands og SAF taka höndum saman til að efla starfsþróun í ferðaþjónustu
Á síðustu vikum hafa nemendur í ferðamálafræði við Háskóla Íslands tekið þátt í námskeiði um starfsþróun. Samtök ferðaþjónustunnar eru samstarfsaðili að námskeiðinu og hafði milligöngu um að tengja fyrirtæki og stofnanir í ferðaþjónustu við námskeiðið. Samstarf SAF og námsbrautar í ferðamálafræði byggir á gömlum grunni en fyrsti samstarfssamningur milli þeirra var gerður árið 2015. Þá […]