Rafrænn aðalfundur SAF 2020 // Miðvikudaginn 6. maí kl. 14.00
Þar sem enn verða hömlur á samkomum í maí hefur stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar ákveðið að áður boðaður aðalfundur og fundir faghópa samtakanna verði rafrænir. Aðalfundur SAF fer fram í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM miðvikudaginn 6. maí kl. 14.00. Fundir faghópa SAF fara fram í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM dagana 27. – 29. apríl. Kosningar til formanns og […]
Mér ofbýður
Það dylst engum að starfsemi langflestra ferðaþjónustufyrirtækja landsins er nú lömuð. Um er að ræða um það bil fjögur þúsund fyrirtæki. Langflest lítil, nokkur meðalstór og örfá stór. Þessi fyrirtæki eru nú í þeirri stöðu að tekjuinnstreymi er í besta falli í algjöru lágmarki, en í flestum tilfellum ekkert. Eftir sitja eigendur fyrirtækjanna með fastan […]
SAF fordæma óábyrga afstöðu ASÍ
Nú er komið formlega fram að Alþýðusamband Íslands hefur hafnað málaleitan Samtaka atvinnulífsins um að leita leiða til að draga tímabundið úr launakostnaði fyrirtækja. ASÍ vill þannig hvorki ljá máls á frestun launahækkana né tímabundinni lækkun mótframlags í lífeyrissjóði. Óformlegar viðræður við ASÍ um þetta hafa staðið yfir um nokkurra vikna skeið án árangurs og […]
Enginn veit …
Fyrir aðeins mánuði síðan hefðu fáir getað ímyndað sér stöðuna eins og hún er í dag. Kórónuveiran hefur stökkbreytt samfélögum og hagkerfum heimsbyggðarinnar á örskömmum tíma. Við þekkjum ekki þessa veröld sem við búum við í dag og horfum agndofa á hvernig veiran þýtur um heiminn og veldur veikindum, dauða og lamar mörg þau gangverk […]
Landsmennt veitir fulla fjármögnun námskeiða
Landsmennt fræðslusjóður Samtaka atvinnnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni býður einstaklingum og fyrirtækum að sækja námskeið þeim að kostnaðarlausu. Í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi hefur stjórn Landsmenntar fræðslusjóðs ákveðið bjóða einstaklingum og fyrirtækjum uppá þann valkost að sækja námskeið á netinu eða í fjarkennslu þeim að kostnaðarlausu. Einnig mun sjóðurinn rýmka úthlutunarreglur sjóðsins sem taka […]
Rekstrarráðgjöf Litla Íslands í boði fyrir félagsmenn SAF
Vegna þeirra efnahagslegu áskorana sem viðskiptalífið stendur nú frammi fyrir vegna COVID-19 býður Litla Ísland upp á tímabundna rekstraráðgjöf til félagsmanna Samtaka ferðaþjónustunnar. Rekstrarsérfræðingur Litla Íslands er Ingibjörg Björnsdóttir, lögmaður og viðurkenndur bókari, en hún hefur áralanga reynslu af fyrirtækjarekstri og rekstrarráðgjöf. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að ræða við rekstrarsérfræðing Litla Íslands geta pantað símatíma eða rekstrarviðtal […]