Aðalfundi SAF 2020 frestað til 6. maí
Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu vegna COVID-19 veirunnar hefur stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar ákveðið að fresta aðalfundi samtakanna sem fara átti fram fimmtudaginn 19. mars 2020. Ákvörðunin er tekin í samráði við Almannavarnir, en aðalfundur SAF er þannig viðburður að félagsmenn koma alls staðar að af landinu og því ekki forsvaranlegt að […]
Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar 2019 er komin út
Rúm tvö ár eru liðin frá stofnun Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. Á þeim tíma hefur Hæfnisetrið í samstarfi við fræðsluaðila farið í 174 heimsóknir til fyrirtækja í ferðaþjónustu í tengslum við verkefnið Fræðsla í ferðaþjónustu. Undirritaðir hafa verið 94 samstarfsamningar sem taka til tæplega 2.900 starfsmanna. Niðurstöður af samtölum við stjórnendur þessara fyrirtækja sýna mikinn vilja þeirra […]
Drögum úr hættu á kórónaveirusmiti
Í ljósi útbreiðslu á kórónaveirunni (COVID-19) á undanförnum vikum hefur verið gefið út sérstakt upplýsingaplakat um hvernig hægt er að draga úr hættu á smiti. Plakatinu er ætlað að vera á áberandi stöðum og ná þannig til ferðamanna og starfsmanna í ferðaþjónustu. Plakatið sem er á íslensku og ensku er gefið út í samstarfi Samtaka […]
Okkar bestu hliðar
Menntamorgunn í Húsi atvinnulífsins 27. febrúar kl. 08.30 – 09.30 Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF boða til morgunverðarfundar í fundaröðinni Okkar bestu hliðar – menntamorgnar ferðaþjónustunnar. Markmiðið með fundinum er að vekja athygli á hlut og hlutskipti erlends starfsfólks í íslenskri ferðaþjónustu. Mikilvægi þessa starfsfólks og hvernig því farnast. Allir velkomnir en skrá þarf þátttöku. Dagskrá […]
Aðalfundur SAF 2020
Rafrænn aðalfundur SAF 2020 // Miðvikudaginn 6. maí kl. 14.00 Þar sem enn verða hömlur á samkomum í maí hefur stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar ákveðið að áður boðaður aðalfundur og fundir faghópa samtakanna verði rafrænir. Aðalfundur SAF fer fram í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM miðvikudaginn 6. maí kl. 14.00. Fundir faghópa SAF fara fram í gegnum fjarfundarbúnaðinn […]
Menntadagurinn 2020 í Sjónvarpi atvinnulífsins
Sköpun í alls kyns myndum var til umfjöllunar á Menntadegi atvinnulífsins sem fór fram í Hörpu 5. febrúar. Rúmlega 300 manns úr atvinnulífinu tóku þátt og enn fleiri horfðu á beina útsendingu frá fundinum. Sköpun í alls kyns myndum var til umfjöllunar en upptökur af erindum frummælenda eru nú aðgengilegar í Sjónvarpi atvinnulífsins hér á […]