Leiðbeiningar varðandi afbókanir og endurgreiðslur
Eins og allir vita er afar erfið staða í íslenskri ferðaþjónustu vegna útbreiðslu COVID-19 á alþjóðavísu. Tekjuflæði ferðaþjónustunnar hefur orðið fyrir verulegu áfalli og um þessar mundir er framtíðin óljós. Bókanir hafa dregist verulegur saman og afbókanir hafa verið tíðar. Fyrirsjáanlegt er að þetta getur haft afar neikvæða áhrif á framtíðarinnkomu. Undir þessum kringumstæðum hafa […]
Upplýsingafundir SA vegna COVID-19
Samtök atvinnulífsins boða til þriggja rafrænna upplýsingafunda á mánudaginn fyrir stjórnendur aðildarfyrirtækja um viðfangsefni sem atvinnulífið stendur nú frammi fyrir vegna COVID-19. Tenglar á fundina verða sendir á fulltrúa aðildarfyrirtækja um hádegi á mánudag. Á fundunum mun gefast færi á að taka þátt í umræðum fyrir þá sem það vilja. 13.00 Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnarHalldór Benjamín Þorbergsson […]
Viðspyrna fyrir Ísland – efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19
Umfang aðgerða fyrsta áfanga stjórnvalda til að bregðast við áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru nemur um 230 ma.kr. eða tæplega 8% af landsframleiðslu. Aðgerðirnar eru þríþættar og miða að því að tryggja afkomu fólks og fyrirtækja, verja grunnstoðir samfélagsins og skapa öfluga viðspyrnu fyrir efnahagslífið. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, […]
Reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen // Áhrif á ferðaþjónustu
Fyrr í dag gaf dómsmálaráðuneytið út reglugerð sem breytir gildandi reglugerð um för yfir landamæri. Breytingin hefur það í grundvallaratriðum í för með sér að útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, er tímabundið bannað að koma til landsins nema í tilteknum undantekningartilvikum. Hætt er við að breytingin hafi töluverð áhrif á rétt íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja þegar kemur að afbókunum og kröfum til endurgreiðslu á þegar greiddum bókunargjöldum. Samtök ferðaþjónustunnar vilja beina því til félagsmanna […]
SAF fundar með Booking.com
Samtök ferðaþjónustunnar áttu í dag fund með fulltrúum Booking.com á Íslandi og Norðurlöndum þar sem farið var yfir afstöðu SAF og Ferðamálastofu þess efnis að Force majeure aðstæður væru ekki uppi á Íslandi samkvæmt samningsskilum fyrirtækisins. Á fundinum létu SAF það skýrlega í ljós að íslenskum gististöðum er jafnan ekki skylt að endurgreiða ferðamönnum sem […]
Upplýsingasíða SAF um COVID-19 veiruna
Við þær aðstæður sem uppi eru samfélaginu og þau áhrif sem COVID-19 veiran hefur á ferðaþjónustu hér á landi er mikilvægt að félagsmenn í Samtökum ferðaþjónustunnar séu vel upplýstir um stöðu mála. Sérstök upplýsingasíða hefur verið opnuð þar sem er að finna upplýsingar sem tengjast ferðaþjónustunni. Síðan verður uppfærð eftir föngum. Upplýsingasíða SAF um COVID-19 […]